NES

Nes
 
íslenska
english
 

Fréttir

Myndir frá opnun

Febrúar 2010

Listamennirnir þennann mánuðinn eru tíu talsins. Þeir koma frá sjö löndum í þremur heimsálfum. Það eru Paola Leonardi frá Bretlandi, Nadine Poulain frá Þýskalandi, Jee Hee Park frá Kóreu, Mari Mathlin frá Finnlandi, Franz Rudolf Stall frá Frakklandi, Margaret Coleman, Anna Shorgren, Morgan Levy and Craniv Boyd frá BNA og Erla S. Haraldsdóttir frá Reykjavík.

Opið hús þennann mánuðinn verður haldið fimmtudaginn 25. febrúrar kl. 18:00-21:00 í vinnustofum listamannanna að Fjörubraut 8.

Fésbók.
Nes listamiðstöð er nú hluti af samskiptanetinu Facebook. Þar er hægt að hafa samband við listamenn sem þegar hafa dvalið hjá Nesi, séð hvað þeir hafa verið að gera og eins að ná sambandi við þá sem eru ókomnir. Skoðaðu Nes á
facebook link

Janúar 2010

Opið hús þar sem listamennirnir sýna það sem þeir hafa verið að fást við þennann mánuðinn verður haldið 28. janúar kl. 18:00-21:00 að Fjörubratu 8.

Listamenn mánaðarins eru Anna Grünemann og Micaela Tröscher frá Þýskalandi, Jee Hee Park frá Kóreu, Lisa Borin frá Kanada, Gregory Cariedo og Craniv Boyd frá BNA og Erla Haraldsdóttir frá Reykjavík.

Desember 2009

Opið hús í Nesi listamiðstöð.
Desember er erilsamur mánuður á Íslandi þar sem hefðin segir að allt eigi að vera hreint frá hólfi í golf á jólunum. Í Nesi listamiðstöð viljum við gera hlé á erlinum og bjóða ykkur að koma í heimsókn til að sjá hvað listamennirnir hafa verið að gera í þessum mánuði.

Við verðum með Opið hús fimmtudaginn 17. desember kl. 17:00 og eru allir velkominir til að spjalla við listamennina og skoða verk í vinnslu.

Þennan mánuði dvelja fjórir listamenn hjá okkur í Nesi listamistöð. Þeir eru Elizabeth Tubergen og Elizabeth Mead frá BNA og Oliver Gardiner frá Englandi og  Di Ball from Ástralíu sem eru bæði að hefja þriðja dvalarmánuðinn á Skagaströnd.

Nóvember 2009

Opið hús hjá Nesi listamiðstöð.
Listamenn hjá Nes listamiðstöð opna vinnustofur sínar í lok hvers mánaðar þar sem þeir sýna þau verk sem þeir hafa verið að vinna að frá komu sinni.

Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:00 viljum við bjóða öllum sem áhuga hafa að koma í heimsókn, skoða listaverk í vinnslu og spjalla við listamennina um verkin og dvölina á Skagaströnd.

Þennan mánuðinn dvelja sjö listamenn frá þremur heimsálfum í Nesi listamiðstöði. Þeir eru Oliver Gardiner frá Englandi, Di Ball frá Ástralíu og Elizabeth Tubergen, Diane Pierce, Crystal Z. Campbell, Lindsay Palmer og Shannon Sullivan frá BNA .


Fleur Ball treður upp í Kántríbæ.
Hin heimsfræga Fleur Ball mun syngja sitt eina lag föstudagskvöldið 13. nóvember kl. 21:30 á eftir spurningakeppninni Drekktu betur.

Hún kynnir sjálfa sig með eftirfarandi hætti

Nes artist residency presents Fleur Ball - the Country and Western superstar from Australia.

Fleur will expertly sing her one hit song and attempt a few others from her. It’s easy to play country and western songbook.

Kantry Bær, Skagastrond, Island, Friday 13th November,11.00pm (or when the pub quiz finishes).

Fleur ball - bull riding

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

hönnun©kh

 
Nes Listamiðstöð | Fjörubraut 8, 545 Skagaströnd | Sími: +354 864 0053 - Fax: + 354 455 2701| Netfang: nes(at)neslist.is